Sá er borðar fisk og kjöt hann frændur sína étur

Láttu kjurt

föstudagur, apríl 22, 2005

Ég held að frjálshyggjufólk sé gengið af göflunum, ég var að lesa greinarnar á síðunni þeirra og þetta er samansafn af frati. Þeir eru talandi um samsæriskenningar ríkisstjórnarinnar afþví að það er frumvarp sem segir til um að það eigi að framvísa skilríkjum ef þú vilt fá símanúmer. Og hvað með það, ef einhver er að ofsækja mig og með hótanir í gegnum síma þá þætti mér gott að geta fengið að vita hver það væri. Já og svo vilja þessir guttar einkavæða skóla og heylbrigðiskerfið. Ohhh, þetta gerir mig svo pirraða. Já einmitt, eina leiðin til að höfða til sem flestra er að einkavæða allt. Helvítis vitleysa. Þetta er svo þröngsýnt fólk að það nær ekki nokkurri átt.
Farin út að borða á Grænan kost :)
Hildur Þóra

Tónlist dagsins: Bob Dylan, Lay lady lay

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home